Tindar Reykjaness

Reykjanesið hefur margar fallegar gönguleiðir upp á að bjóða. Reykjanes Geopark í samstarfi við Þráinn Kolbeinsson hefur tekið saman 9 gönguleiðir af Reykjanesinu og nefnist verkefnið Tindar Reykjaness. Verkefnið var styrkt af Sóknaráætlun Suðurnesja.

Graenavatnseggjar
Hæð 359 m
Erfiðleikastig 2/4
Tími 1-2 klst.
Vegalengd 3-5 km
Hækkun 270 m.
Grænavatnseggjar

Grænavatnseggjar bjóða upp á skemmtilega og þægilega göngu með frábæru útsýni yfir Djúpavatn, Sogin, Grænavatn o.fl. Það er hægt að byrja gönguna á þremur mismunandi stöðum: Við gamla borholu við Sogin og svo á sitt hvorum enda Djúpavatns. Óháð því hvar byrjað er þá er gangan nokkuð auðveld en auðvelt að lengja með því að tengja við aðrar leiðir (Sogin, Grænudyngju o.fl.). Þegar komið er efst á Grænavatnseggjar sést yfir allt Djúpavatn og tilvalið er að halda leiðinni áfram suður eftir eggjunum í átt að Grænavatni. Hægt er að ganga í kringum það og ganga aftur norður með Keili á vinstri hönd. Eftir stutta göngu má svo sjá Spákonuvatn og Sogin. Frábær ganga á stórbrotnu og fjölbreyttu svæði rétt fyrir utan borgarmörkin.

Selsvallafjall
Hæð 359 m
Erfiðleikastig 2/4
Tími 1-4 klst.
Vegalengd 2-12 km
Hækkun 300 m
Selsvallafjall

Selsvallafjall er staðsett á skemmtilegu svæði sem ekki margar fara um. Gönguna er bæði hægt að byrja við Suðurstrandarveg (þar sem Vigdísarvallarvegur byrjar) eða með því að keyra inn Vigdísarvelli. Ef byrjað er við Suðurstrandarveg er gengið norður í átt að Núpshlíðarhálsi og honum fylgt þangað til Selsvallafjalli er náð. Í vesturhlíðum Selsvallafjalls eru leifar af breskri stríðsflugvél sem fórst þar 1943 (https://stridsminjar.is/en/a-list-of-crash-sites-by-year/incidents-in-1943/108-hudson-hraunsel-nupshlidharhals-june-10-1943) (spurning hvort þið mynduð vilja hafa 1-2 línur í viðbót um það?). Af toppi Selsvallafjalls er frábært útsýni í allar áttir og í góðu skyggni má m.a. sjá til Vestmannaeyja, Snæfellsjökuls og Eldeyjar.

Geitahlid
Hæð 385 m
Erfiðleikastig 1/4
Tími 1-2 klst.
Vegalengd 4-5 km
Hækkun 320 m
Geitahlíð

Geitahlíð er falleg grágrýtisdyngja rétt austan við Krýsuvík. Auðvelt er að komast að henni og bílastæði við upphaf göngu. Á láglendinu sunnan undir Geitahlíð er gígurinn Eldborg sem er tilvalið að skoða í leiðinni. Gangan ætti að henta flestum og á hæsta punkti má sjá hin ýmsu kennileiti til allra átta: Kleifarvatn, Sveifluháls, Stapatinda o.fl.

Keilir
Hæð 379 m
Erfiðleikastig 2/4
Tími 2-3 klst.
Vegalengd 7-8 km
Hækkun 280 m
Keilir

Keilir er frábær ganga fyrir fólk á öllum aldri en krefst þess þó að geta gengið upp þokkalega brattan kafla þar sem eitthvað um laust grjót er og laus sandur. Það tekur um 2-3 klst. að ganga frá bílastæði, upp á topp og aftur til baka en vegalengdin er 7-8 km með 280m hækkun. Byrjunarpunktur er augljós með bílastæði og skilti og þaðan er hægt að er fara tvær leiðir að fjallinu. Önnur leiðin er stikuð og fer yfir hraunið en hin fer suður eftir Oddafellshrygg og svo vestur í átt að Keili. Gæti verið skemmtilegt að hafa þetta hringferð. Á toppi Keilis er útsýnissúla og frábært útsýni í allar – ganga sem allir ættu að prófa.

Hverafjall
Hæð 308 m
Erfiðleikastig 1/4
Tími 1 klst.
Vegalengd 1 km
Hækkun 200 m
Hverafjall

Gangan upp Hverafjall er stutt og laggóð og tilvalin til að fara með börn. Hægt er að leggja bílnum við Seltún og skoða háhitasvæðið áður en lagt er af stað upp fjallið. Útsýnið á leiðinni og ofan af toppnum mjög tilkomumikið þrátt fyrir að hækkunin sé ekki mikil. Þaðan sjást Grænavatn, Kleifarvatn ásamt fleiri fallegum stöðum. Gangan þarf ekki að taka meira en klukkutíma en skemmtilegt getur verið að halda áfram á næsta topp sem stendur beint fyrir ofan Seltún. Þaðan er síðan hægt að komast aftur á bílastæðið með því að fara niður hinumegin.

Middegishnukur
Hæð 392 m
Erfiðleikastig 2/4
Tími 1-2 klst.
Vegalengd 2-3 km
Hækkun 300 m
Miðdegishnúkar

Miðdegishnúkar eru á Sveifluháls sem liggur vestan við Kleifarvatn. Á toppnum er frábært útsýni eftir hryggnum til suðurs og norðurs en einnig er gaman að sjá Kleifarvatn úr þessari hæð. Til vesturs blasa svo við Trölladyngja, Grænudyngja, Keilir og fleiri fallegir tindar. Gangan er mjög skemmtileg og hægt að útfæra á nokkra vegu eftir því hve langri göngu er leitast eftir. Skemmtilegt getur verið að leggja bílnum hér (63°54’36.6″N 22°02’07.7″W) og ganga þaðan beint upp. Þá tekur við flatlendi umkringt stórbrotnum klettum. Eftir um 500m blasir tindurinn við í austri og á leiðinni upp síðasta kaflann er skemmtilegur hellir sem er tilvalinn til að borða nesti. Gangan krefst ekki sérstaks búnaðar eða tæknikunnáttu en ekki verra að vera í smá formi.