Kleifarvatn
-
LengthLess than 1 km
-
difficultyEasy
Explore the beauty of Kleifarvatn
Stærsta stöðuvatn Reykjanesskagans, 9,1 ferkílómetrar, vatnið er þriðja stærsta stöðuvatn á Suðurlandi og eitt af dýpstu vötnum landsins eða um 97m djúpt. Það fyllir í dæld milli Brennisteinsfjalla og móbergshryggjarins Sveifluhálss. Smálækir renna í það en aðeins grunnvatn úr því. Töluverður jarðhiti er syðst í vatninu og einnig út af Innri stapa vestan við það.
Fyrir einhverjum árum síðan voru silungsseiði látin í vatnið og dafnar fiskurinn ágætlega í því. Munnmæli herma a skrímsli hafi haldið sig við Kleifarvatn og sést þar endrum og eins. Á það að hafa verið ormskrímsli, svart að lit og á við meðal stórhveli að stærð.
Previous
Next

Location
Kleifarvatn

Coordinates
Latitude
63.925342
Longitude
-21.974505
Related destinations
- Easy
- Average
- Hard
- Very Hard
difficulty
Easy
Vigdísarvellir
Víðir, flatir grasvellir við rætur móbergshryggja. Þar sjást rústir tveggja smábýla sem minna á forna búskaparhætti á hálendi. Yngri bærinn var yfirgefinn eftir harða jarðskjálfta 1905.








