Eldey
-
LengthLess than 1 km
-
difficultyEasy
Explore the beauty of Eldey
Eldey reis úr sjó í gjóskugosi og er gerð úr lagskiptu móbergi, 77 m há, um 15 km frá landi úti á Reykjaneshrygg sem er hluti Mið-Atlanshafshryggjarins. Aldur hennar er óþekktur. Um 18.000 súlupör halda sig á 0,3 ferkm flötu landi.
Þverhnípt klettaeyja (77 m.y.s) 8 sjómílur suður af Reykjanesi.
Hún er innsta skerið í skerjaklasa miklum sem stendur á einni grynningu og nær klasinn 45 sjómílur frá landi. Kallast hann Fuglasker eða Eldeyjar. Eitt þessara skerja var Geirfuglasker þar sem síðustu höfuðstöðvar geirfuglsins voru en það sökk að mestu í eldsumbrotum 1830.
Í Eldey er ein af stærstu súlubyggðum sem þekkist í heiminum og er eyjan jafnan þakin súlu. Við talningu, sem gerð var 1949 var fjöldi súlna þar talin um 70 þúsund.
Previous
Next

Location
Eldey

Coordinates
Latitude
63.741125
Longitude
-22.957386
Related destinations
- Easy
- Average
- Hard
- Very Hard
difficulty
Easy
Vigdísarvellir
Víðir, flatir grasvellir við rætur móbergshryggja. Þar sjást rústir tveggja smábýla sem minna á forna búskaparhætti á hálendi. Yngri bærinn var yfirgefinn eftir harða jarðskjálfta 1905.




