Sveifluháls
-
LengthMore than 10km
-
difficultyAverage
Explore the beauty of Sveifluháls
Einn af lengstu og stærstu móberghryggjum jarðvangsins. Hann geymir góðan þverskurð af ásýndum móbergsmyndunar; lagskipt móberg (túff), þursaberg (breksju) og bólstraberg. Allt ber þetta vitni um átök kviku, jökulíss og vatns.
Hraunbreiða fyrir vestan Krýsuvík suður af Núpshlíðarhálsi ( Vesturháls).
Vestasti hluti þeirrar hraunbreiðu, sem á uppdráttum er nefnt Ögmundarhraun er þó af öðrum toga spunnið, það nær vestur undir Ísólfsskála. Ögmundarhraun er runnið frá norðurhluta gígaraðar austan í Núpshlíðarhálsi og hefur meginhraunflóðið fallið milli Latsfjalls og Krýsuvíkur-Mælifells og allt suður í sjó og langleiðina austur undir Krýsuvíkurberg. Sunnan til í hrauninu er 2 hólmar sem standa upp úr og er annar nefndur Óbrynnishólmi en hinn, sá austari Húshólmi. Í þeim síðar nefnda eru bæjarrústir sem taldar eru vera með þeim elstu á landinu eða frá landnámi og mótar vel fyrir þeim eins og sést á loftmyndinni hér. Er talið að hér séu rústir af elstu kirkju á Íslan
Previous
Next

Location
Sveifluháls

Coordinates
Latitude
63.900578
Longitude
-22.056049
Related destinations
- Easy
- Average
- Hard
- Very Hard
difficulty
Easy
Vigdísarvellir
Víðir, flatir grasvellir við rætur móbergshryggja. Þar sjást rústir tveggja smábýla sem minna á forna búskaparhætti á hálendi. Yngri bærinn var yfirgefinn eftir harða jarðskjálfta 1905.






